Viljayfirlýsing um friðun Skerjafjarðar og upplýsingamiðstöð á Álftanesi

alftanesþann 8. apríl sl.var merkur dagur fyrir okkur Álftnesinga því þá undirrituðu Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra, Sigurður Magnússon bæjarstjóri og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra viljayfirlýsingu um friðlýsingu Skerjafjarðar og um upplýsingamiðstöð á Álftanesi. Veðrið þennan dag var yndislegt og fór undirrituni fram á skaninum með Skerjafjörðinn svo fagran í baksýn.  Mikil vinna hefur átt sér stað við að ná fram friðlýsingu Skerjarfjarðarins og er þetta eitt skref í átt að því góða takmarki.  Upplýsingamiðstöðin verður til að byrja með staðsett í húsunum við Kasthúsatjörnina þar sem áhaldhús Sveitarfélagsins er í dag. Þar verður upplýsingamiðstöð og gestastofa en markmiðið er að flétta saman kynningu á náttúru svæðisins og sögu Bessastaða. Með þessu á að efla umhverfisvæna og menningartengda ferðaþjónustu á Álftanesi sem skapar svo ný atvinnutækifæri á Álftanesi. Þarna verður hægt að taka á móti þeim fjölmörgu ferðamönnum sem koma að Bessastöðum á hverju ári. Þetta er mikilvægt skref að enn stærra markmiði sem er að koma hér upp menningar og náttúrufræðisetri á miðsvæði Álftaness.  Menntamálaráðherra mun beita sér fyrir því að safnakennsla fari þarna fram með styrkveitingu og gerð fræðsluefnis, en hún hafði á orði að hér væri frábært svæði til útikennslu sem kjörið væri að nýta. Þetta er mikið tilhlökkunarefni því börnin njóta sín svo vel í vinnu úti í náttúrunni og eru aðstæður hér með besta móti. Við þurfum því að taka vel á móti þessum börnum og kynna náttúru Álftaness fyrir þeim. Börnin munu líka ná meiri tengslum við sögu Bessastaða ef hún er sögð þar sem hún átti sér stað! Flott framtak.  Margrét Jónsdóttir

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband