Samþykktir frá fundi Álftaneshreyfingarinnar, þann 24. mars
25.3.2010 | 22:12
Á fundi Álftaneshreyfingarainnar, 24. maí s.l., var borin upp tillaga um áherslur í vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu í Sveitarfélaginu Álftanes og varðandi þær sameiningarviðræður, við önnur sveitarfélög, sem samningur við eftirlitsnefnd og síðar fjárhaldsstjórn á vegum Samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytisins gerir ráð fyrir.
Áliktanirnar, sem fundurinn samþykkti, eru:
Að fjárhagslegri endurskipulagningu, sem miðar að því aðsveitarfélagið verði rekstrarhæft, verði hraðað og að horfið verði frá fyrirhuguðum stórfelldum niðurskurði í sumar og haust og felld niður auka skattlagning um áramót. Niðurgreiðslur, styrkir og þjónustugjöld verði í samræmi við það sem gerist áhöfuðborgarsvæðinu, sem er eitt atvinnu- og þjónustusvæði.
Að teknar verði upp könnunarviðræður um sameiningu við Reykjavík og með þeim sleginn tónn um stærri og frekari sameiningu áhöfuðborgarsvæðinu öllu.
Helsta samningsmarkmið, í viðræðum við Reykjavík, verði að Álftnesingar njóti góðrar nærþjónustu, svo sem í skóla-, æskulýðs-, félags- og menningarmálum og að áfram verði unnið að uppbyggingu Græns miðbæjar" og vistvæns atvinnusvæðis og fylgt eftir áherslum Álftaneshreyfingarinnar í umhverfismálum og um verndun strandsvæða.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:13 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.