Bókun bæjarfulltrúa Á-lista á bæjarstjórnarfundi 17. desember 2010, fjárhagsáætlunar Fjárhaldsstjórnar fyrir árin 2011-2014 og skýrslu sem áætluninni fylgir
21.12.2010 | 01:09
Sigurður Magnússon, bæjarfulltrúi Á-lista lét bóka eftirfarandi á fundi bæjarstjórnar 17. desember og kynnti athugasemdir sínar og Kristínar Fjólu Bergþórsdóttir, varabæjarfulltrúa, í tilefni af kynningu á skýrslu fjárhaldsstjórnar og fjárhagsáætlun til næstu þriggja ára:
Ég hafna aðdróttunum um að bæjarfulltrúar á Álftanesi, bæði fulltrúar Á-lista og D-lista, hafi við sölu veitukerfa og fasteigna og við rekstrarákvarðanir, farið á svig við ákvæði sveitarstjórnalaga. Ég átel Fjárhaldsstjórnina fyrir að leita ekki hagkvæmari leiða fyrir bæjarsjóð varðandi framkvæmdir á miðsvæðinu s.s. með breytingu samninga í stað þess að leggja til sammningsslit við framkvæmdaaðila með stórfelldu tjóni fyrir bæjarsjóð. Við styðjum hinsvegar samninga um endurkaup íþróttamannvirkja af Fasteign og söluhlutafjár sveitarfélagsins í Fasteign, enda samrýmist það tillögu Á-lista frá janúar 2010.
Við teljum niðurskurð á þjónustu við barnafólk allt of mikinn og tillögu um 5% auka útsvar ranga stefnu við núverandi aðstæður. Í stað þessa álagas og niðurskurðar bar að krefjast frekari leiðréttinga frá Jöfnunarsjóði og semja með kostnaaðarminni hætti um breytingar á uppbyggingu miðsvæðisins. Við teljum að Fjárhaldsstjórnin hafi vanrækt að vinna að og rökstyðja frekari jöfnunargreiðslur. Við teljum að greining hennar á háum launakostnaði sem hlutfalli af tekjum rangan. Rekja megi hán launakostnað til íbúasamsamsetningu á Álftanesi, þar sem börn og unglingar eru miklu hærra hlutfall íbúa en í öðrum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, fremur en hárra launa til starfsmanna.Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:37 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning